Fullveldi í stjórnarskránni

Punktar

Ný stjórnarskrá þarf að tilskilja þjóðaratkvæði um framsal verulegs hluta af fullveldi þjóðarinnar. Dæmi um slíkt er auðvitað Evrópusambandið, sem fer hvort sem er í þjóðaratkvæði. Ég tek jafnframt fram, að ég styð aðild að sambandinu. Einnig tel ég, að þjóðaratkvæði þurfi um hliðstæðar ákvarðanir í fortíðinni. Til dæmis aðild að Sameinuðu þjóðunum og Atlantshafsbandalaginu, hugsanlega að Norðurlandaráði. Ekki þurfi hins vegar þjóðaratkvæði um minna afsal fullveldis. Svo sem um aðild að fjölþjóðlegum nefndum, ráðum og einkum dómstólum. Skilgreiningar á þessu eiga að vera í nýju stjórnarskránni.