Furðulegt er, hve mikið innanflokshatur rúmast í minnsta flokki landsins. Deilur innan Frjálslynda flokksins blossa upp í greinum og bloggi. Sumir vega að formanni flokksins, aðrir að þingflokksformanni. Furðulega margir telja sig bezt til forustu flokksins fallnir. Þótt þeir hafi fæstir náð árangri í kosningum. Mest af rifrildinu er persónulegt. Víða skín þó í gegn ósætti vegna afstöðu til nýbúa og útlendinga. Flokkurinn rambar á jaðri rasisma. Enda hefur sú stefna reynzt fylgissæl í nágrannaríkjunum. Innra hatrið í yfirstétt flokksins er þó mun sterkara en hatrið á útlendingum.
