Frjálshyggja hafnar gegnsæi

Punktar

Frjálshyggjumenn íslenzkir hafna gegnsæi. Þeir vilja, að skattar fólks séu leyndir. Nokkrir þingmenn þeirra hafa lagt það til ár eftir ár. Nú hafa þeir fengið stuðning Persónuverndar, sem segir opnar skattskrár vera áhyggjuefni. Persónuvernd var stofnuð til að gæta hagsmuna auðmanna og glæpona. Hún vill eins og frjálshyggjan, að allt sé hulið. Leyniskattar fengu ekki framgang í stjórnartíð Framsóknar. Nú er að vita, hvort málið léttist í stjórnartíð Samfylkingar. Í Noregi er skattskráin opin allt árið og er á vefnum. Samfélagið er gegnsærra þar, lýðræðið er vinsælla en hér.