Lehman Brothers er gjaldþrota, Merrill Lynch og Bear Sterns étnir af stærri bönkum. Af fimm stórum fjárfestingarbönkum Bandaríkjanna standa nú eftir bara Goldman Sachs og Morgan Stanley. Ríkisstjórnin hirti lík íbúðasjóðanna Fanny Mae og Freddie Mac. En hirti ekki líkið af Lehman, sem varð hreinlega gjaldþrota. Í morgun lækkuðu pappírar í öllum kauphöllum og aukið myrkur er framundan. Fjármálastefna Vesturlanda hrundi. Frjálsi markaðurinn bilaði í bankakerfinu. Hrokafullir bankastjórar eru nú hafðir að spotti. Nýtt kerfi fjármála mun smám saman taka við með harðari reglum og ríkisafskiptum.
