Fríverzlunin í uppnámi

Punktar

Nú hóta viðsemjendur okkar að segja upp fríverzlun í EFTA. Frans Weekers, þingmaður í Hollandi, nefndi það í dag. Það yrði rothöggið, kannski eðlileg afleiðing af botnlausri heimsku þjóðarinnar og villtu lýðskrumi leikarans á Bessastöðum. Við erum ekkert án utanríkisviðskipta. Bara núll og nix. Án tollfrjálsra viðskipta við hatað Evrópusamband erum við bara bjargarlausir kolbítar. Vantar bara, að Gordon Brown í kosningaslag loki fyrir flugið, þá er ferðaþjónustan líka búin. Einhvern tíma segja útlendingar, að reyna verði að kenna okkur umgengnishætti. Við höfum því miður ekki fullorðnazt enn.