Fríverzlun grænmetis

Greinar

Í manneldisþáttum sjónvarpsins í vetur kom fram, að Íslendingar borða óeðlilega lítið af grænmeti og garðávöxtum. Þar kom einnig fram, að hæfilegt magn matvæla úr jurtaríkinu mundi gera kröfu til rúmlega þriðjungs matarpeninga fólks.

Þessar tvær staðreyndir eru greinilega tengdar. Íslendingar eru ekki andvígari grænmeti en aðrar þjóðir. Þeim finnst það bara of dýrt. Það er raunar ósköp eðlilegt viðhorf, því að í flestum öðrum löndum eru matvæli úr jurtaríkinu aðeins lítið brot af matarútgjöldum fólks.

Útsalan á tómötum síðustu vikuna, í júlí sýndi, að Íslendingar fást til að borða mun meira grænmeti en þeir gera venjulega, ef boðið er upp á það á viðráðanlegu verði. Þessa viku seldust upp allar umframbirgðir tómata.

Bæði neytendur og framleiðendur högnuðust á þriðjungs lækkun tómataverðs. Garðyrkjubændur komust hjá því að henda tómötum á haugana og juku tekjur sínar í heild. Neytendur fengu tiltölulega ódýra tómata í eina viku.

Nú er spurningin sú, hvort Íslendingar geta ekki lært eitthvað af þessu til frambúðar, að minnsta kosti þá einföldu reglu, að framboð og eftirspurn eiga að ráða verði. Þrátt fyrir allt sýnir reynslan, að neytendur hafa verðskyn.

Við höfum annað og stærra dæmi um breyttar neyzluvenjur hér á landi. Það eru ávextir, sem fyrir þrjátíu árum voru lúxusvara, sem börn sáu helzt á jólunum. Innflutningur ávaxta var háður einokun, skömmtun og hátollum.

Langt er síðan þetta breyttist. Nú er innflutningur ávaxta frjáls og ótollaður. Fyrir bragðið er jafnan til á boðstólum mikið úrval af tiltölulega ódýrum ávöxtum. Verð á ávöxtum er svo hagstætt í samanburði við önnur matvæli, að þeir eru orðnir hversdagsleg neyzluvara ungra og gamalla um land allt.

Svipuð breyting þarf að verða í grænmeti og garðávöxtum, svo að fæða Íslendinga verði fjölbreyttari en áður og þessar afurðir nái eðlilegu hlutfalli í mataræði þjóðarinnar.

Fríverzlun með grænmeti og garðávexti mundi fljótlega leiða til stórlækkaðs verðs, svo sem reynslan var á sínum tíma í ávöxtunum.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið