Frétt á afturfótunum

Punktar

Las í morgun skrítna frétt á Visir.is. Þar var sagt frá orrustu fylgismanna Gunnars I. Birgissonar og Ármanns Kr. Ólafssonar í Kópavogi. Fyrirsögnin var: “Hallarbylting í Kópavogi – stuðningsmenn Gunnars og Ármanns tókust á.” Síðan var texti fréttarinnar um fund í sjálfstæðisfélaginu í Kópavogi. Þar kom fram, að Þórður Ólafur Þórðarson tók við sem formaður af Jóhanni Ísberg. Ekki var getið um atkvæðatölur, sem mér finnst skítt. Hvað eru kosningar án atkvæðatalna? Í síðustu setningunni kom loks fréttin: Stuðningsmaður Ármanns vann stuðningsmann Gunnars. Átti að vera í fyrirsögn. Rosa lélegt fréttamat.