Ég sá forseta Norðurþings í sjónvarpinu, vælandi frekt barn. Okkur dugar ekki eitt gagnaver, sagði barnið. Við þurfum meira en markað fyrir 20-50 megavött. Við þurfum markað fyrir 400-500 megavött, sagði það. Af hverju geta þessi ofvöxnu börn ekki bjargað sér sjálf. Æpandi á ríkið sí og æ að koma með styrki og álver og göt í fjöll. Getur þetta fólk ekki rifið sig upp á rassinum og farið að hugsa um sig sjálft. Frekjugangurinn í ofvöxnum börnum samfélagsins er kominn út yfir allan þjófabálk. Húsvíkingurinn minnti á útgerðarmenn og Keflvíkinga í frekjukasti sínu. Hvar er uppeldi fólks?
