Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum er einn af frekjudöllunum, sem haga sér enn að hætti ársins 2007. Sem betur fer er ekki hægt að koma upp álveri í Eyjum vegna skorts á borholum og fossum. Þá mundi hann láta eins og bæjarstjórar Húsavíkur og Keflavíkur. En Elliði Vignisson eitrar í hjáverkum fyrir Eyjamönnum með díoxíni. Auðvitað ósáttur við, að umhverfisráðherra biðji um, að sorpbrennslunni þar sé lokað áður en hún veldur meira heilsutjóni. Vill, að ríkið taki þátt í kostnaðinum við breytta sorphirðu. Ekki eitt andartak tel ég, að fórnardýr brennslunnar hviki frá stuðningi við frekjudallinn.