Framtíðin í smábátaveiðum

Punktar

Áratugum saman hef ég predikað, að framtíðin felst ekki í freðfiski. Hún er í ferskum fiski í flugi til veitingahúsa í Evrópu. Ferskur fiskur er miklu dýrari en freðinn og verðmunurinn eykst stöðugt. Við eigum hratt að hætta verksmiðjustússi í fiski. Hún á í vonlausri samkeppni við fisk frá Víetnam til fangelsa og skóla. Við eigum að efla smábátaveiðar með góðri meðferð fiskjar um borð, blóðgun, útblæðingu, sjóskiptum og kælingu í 0-1 gráðu. Sá fiskur fer í fínu veitingahúsin í Evrópu, sem slást um alvörufisk. Þegar við náum kvótanum af þjófunum, þarf að breyta íslenzkri útgerð í smábátaveiðar.