Frammíköll ódrukkinna

Punktar

Vont er, ef alþingismenn eru drukknir í ræðustól, en getur þó gengið, ef þeir segja eitthvað af viti. Alltof algengt er, að edrú þingmenn bulli út í eitt. Verri en meinta ölvunin eru frammíköllin. Mér virðast sumir þingmenn, einkum Sjálfstæðisflokksins, halda sig vera á málfundi í gagnfræðaskóla. Undir einni stuttræðu eru skráð fimmtíuogeitt frammíkall. Það gengur ekki, þingmenn verða að bulla í einhverri röð, ekki allir samtímis. Mér finnst ærið tilefni hjá forsetum þingsins að stöðva frammíköll og annan fíflagang sjálfstæðisþingmanna. Fremur en að fara að láta þingmenn blása í blöðru.