Frakkar óttast fyllerí

Punktar

Frakkar hafa lengi verið taldir kunna að nota áfengi. Fyllerí unglinga hafa verið eins sjaldgæf þar og þau eru algeng á Norðurlöndunum og Bretlandi. Frakkar hafa aldrei séð tilgang í að drekka sig fulla. Nú óttast franskir fjölmiðlar og embættismenn, að þetta sé að breytast. Fjölmiðlar eru fullir af fréttum um hörmulegar afleiðingar af drykkju unglinga. Stjórnmálin hafa tekið við sér. Undirbúnar hafa verið lagabreytingar. Þær fela í sér hækkun áfengiskaupaaldurs. Bann við sölu áfengis í nágrenni skóla. Bann við afslætti á hanastélstíma. Frakkar viðurkenna vandann, eru hættir afneitun.