Þetta er frábær kosningabarátta. Ekki króna í útgjöld hjá mér. Eins ólíkt venjulegum kosningum pólitískum og unnt er. Flestir frambjóðendur hafa það notalegt eins og ég. Ég blogga jafnt og ég gerði áður, en reyni að hafa eina grein á dag um efnin stjórnlagaþing eða stjórnarskrá. Farið á heimasíðu mína, www.jonas.is, finnið leitarboxið til vinstri og sláið inn hugtökin. Fáið upp 83 greinar um stjórnlagaþing og 245 greinar um stjórnarskrá, nýjar og gamlar. Lesið, ef þið nennið. Mun ekki auglýsa, ekki opna stuðningssíðu á fésbók, ekki mæta á fundi, ekki heilsa fólki innilega, ekki kyssa ungabörn.