Þótt þjóðin eigi erfitt með að fást skynsamlega við pólitík, getur hún spýtt í lófana á örlagastundu. Í fyrra nam gróði okkar 119 milljörðum króna. Í alvöru-gjaldmiðli, sem nýtist til að grynna á erlendum skuldum fyrirtækja og ríkis. Annar eins gróði hefur aldrei áður verið í sögu fullveldisins. Kemur til viðbótar 87 milljarða hagnaði árið 2009. Á tveimur árum græddi þjóðin um 200 milljarða á vöruskiptum og um 100 milljarða á þjónustuskiptum. Með sama framhaldi verðum við fljót að borga skuldir okkar. Við erum að spara grimmt og við munum sjá fljótt til sólar. Ef við hleypum ekki skrumurum að völdum.