Marinó G. Njálsson hefur réttilega sent ríkisskattstjóra bréf um forskráðar lygar bankanna á skattframtölum. Þeir taka ekki mark á dómum Hæstaréttar um meðferð gengistryggðra lána. Halda áfram að sýna ýktar skuldir framteljenda eins og ekkert hafi gerzt í látunum í fyrra. Marinó heimtar, að bönkunum verði gert að skrá réttar upplýsingar. Og fólki gefinn frestur til að skila skattskýrslum. Ríkisskattstjóri hefur greinilega framið afglöp með því að heimila bönkum að forskrá lygar inn á framtöl fólks. Hann verður að bæta úr þeim mistökum. Sömuleiðis ber honum að láta bankana svara til saka.