Forsetinn tregðast við að setja embættinu siðareglur, eins og rannsóknanefnd Alþingis hvatti þó til. Í skýrslu hennar komu fram ýmis atriði úr vafasömum forsetaferli Ólafs Ragnars Grímssonar. Yfirleitt fjölluðu þau um eindreginn stuðning forsetans við útrásarbófana. Forsætisráðherra hefur nokkrum sinnum hvatt forsetann til að bregðast við skýrslunni, en hann vill ekki gera það. Enda er hann fyrst og fremst lýðskrumari, sem vill ekki láta hefta sig með siðareglum. Sem betur fer mun stjórnlagaráð taka málið upp. Nauðsynlegt er, að forsetar landsins fái siðareglur eins og aðrir, sem þurfa hundahreinsun.