Forsætisráðherra laug

Punktar

Fullkomlega eðlilegt er, að spurt sé um greiðslur ráðuneyta til svonefndra sérfræðinga. Enn brýnna er, að útskýrt sé, hvers vegna svör forsætisráðherra eru röng. Þar vantar sérfræðinga og þar vantar upphæðir. Viðbrögð Jóhönnu Sigurðardóttur eru út í hött. Felur sig bak við kontórista. Segir, að þetta sé “alvarleg aðför að starfsheiðri starfsmanna Stjórnarráðsins”. Sama er að segja um Álfheiði Ingadóttur í forsætisnefnd Alþingis. Segir fyrirspurnina vera “einelti við fræðimenn”. Málið snýst ekki um neitt slíkt. Það snýst um, að forsætis reyndi að fela greiðslur til sérfræðinga. Hún laug að þjóðinni.