Fornaldareðlan blæs

Punktar

Sama daginn og örlagadómur Hæstaréttar féll í máli Kaupþingsmanna blés mesta fornaldareðlan til sóknar gegn almenningi. Viðskiptaráð hvatti til aðgerða, sem á sínum tíma leiddu til hrunsins. Heimtaði einkavæðingu innviða samfélagsins. Ráðið vill ekki læra neitt af ruglinu í Reykjanesbæ. Enn síður vill ráðið læra neitt af skorti á opinberum hömlum á bankabófum einkavæddra banka. Úti í heimi krefjast gráðugir viðskiptamenn einkavæðingar á vatni og lofti. Þótt slíkt hafi leitt til hörmunga í rómönsku Ameríku. Viðskiptagræðgin er orðin stjórnlaus og verður aðeins stöðvuð með pólitískri vakningu og samfélagsvæðingu.