Max Mosley riðar til falls sem forseti alþjóðasambands bílíþrótta. Þú veizt það ekki, ef þú fylgist bara með Formúlu 1 í sjónvarpi eða lest fréttir á kappakstur.is. Þar er Mosley helgur maður. Hann var myndaður með nokkrum hórum í nazistabúningi. Það hefur táknrænt gildi, því að faðir hans var formaður brezkra nazista. Þetta skaðar álit bílíþrótta. Nú hefur Ísrael afturkallað heimboð. Ferrari og Porsche, BMW og Mercedes, Honda og Toyota heimta betri formann. Mark Webber og Niki Lauda segja Formúlu 1 ekki hafa efni á Mosley. Honum er hafnað af bandarísku samtökunum. Hann er dauður.
