Fölsunarnefnd fær á baukinn.

Greinar

Vísitölufölsunarnefndin, sem gengur undir nafninu verðlagsnefnd, hefur nú fengið annan harðan skellinn á skömmum tíma á vettvangi dómsmálanna. Með tveimur úrskurðum hefur grundvellinum verið kippt undan hefðbundnum lögleysum nefndarinnar.

Í lögum segir, að verðlagsnefnd skuli miða úrskurði sína við könnun á álagningarþörf fyrirtækja með skipulagðan og hagkvæman rekstur. Þessi lög hefur nefndin hunzað með skipulögðum hætti.

Sem oddamaður nefndarinnar hefur Björgvin Guðmundsson, skrifstofustjóri viðskiptaráðuneytisins, komið fram sem refsivöndur hvers viðskiptaráðherrans á fætur öðrum. Um allt land hafa menn skolfið í ótta og auðmýkt.

Umboðsmaður ráðherra hefur gert nefndina að vettvangi stjórnvalda til að falsa vísitöluna og að braska með pólitísk völd. Nú hefur hann verið dæmdur fyrir þetta. Lög og réttur hafa náð fram að ganga gegn gerræði og oflæti stjórnmálamanna.

Fyrr í þessum mánuði úrskurðaði ríkissaksóknari, að ekki væri ástæða til aðgerða af hálfu hins opinbera gegn Dagblaðinu og Vísi, sem höfðu neitað að taka mark á gerræði vísitölufölsunarnefndar. Þar með ónýttist allur málarekstur verðlagsstjóra gegn þessum dagblöðum.

Það er hefðbundið, að slíkir úrskurðir ríkissaksóknara eru án rökstuðnings. Þess vegna var ekki ljóst, hvort hann kastaði út málinu vegna lögbrota nefndarinnar eða af öðrum ástæðum. Sigur réttlætisins í málinu var því ekki nema hálfur.

En nú hefur í Borgardómi verið kveðinn upp dómur í máli Verzlunarráðs Íslands, Kaupmannasamtaka Íslands og Félags íslenzkra stórkaupmanna gegn öðrum úrskurði nefndarinnar, sem einnig var byggður á gerræði, en ekki lögum.

Úrskurður nefndarinnar var dæmdur ógildur og Björgvin Guðmundsson dæmdur til að greiða stefnendum málskostnað. Í úrskurðinum segir, að nefndin hafi ekki virt lagagreinina um könnun á hag vel rekinna fyrirtækja í greininni.

Þar með hefur verið dæmt, að úrskurðir nefndarinnar séu ógildir og ólöglegir, nema þeir séu byggðir á könnun á álagningarþörf fyrirtækja með skipulagðan og hagkvæman rekstur, svo sem segir í lögum.

Jafnframt var viðskiptaráðherra sýknaður í málinu. Sá úrskurður jafngildir yfirlýsingu um, að hvorki formanni vísitölufölsunarnefndar né öðrum nefndarmönnum beri að líta á sig eða geti litið á sig sem umboðsmenn ráðherra eða ríkisstjórnar.

Allt eru þetta makleg málagjöld, sem munu hafa mikil áhrif á viðhorf manna til nefndarinnar. Hér eftir verður hún að byggja úrskurði sína á traustum gögnum. Annars gerir hún ekki annað en að mæta fyrir dómstólum.

Ýmist munu menn hunza ákvarðanir vísitölufölsunarnefndar eða kæra þær á grundvelli þeirra prófmála, sem hér hefur verið lýst. Út úr þeim ógöngum er aðeins til sú leið, að vísitölufölsunarnefnd gerist verðlagsnefnd og fari að starfa að lögum.

Tvöfaldur ósigur nefndarinnar á vettvangi dómsmálanna í þessum mánuði er tvöfaldur ósigur oflætis og gerræðis íslenzkra stjórnmálabraskara. Þessi sigur réttlætisins má ekki ganga þjóðinni úr greipum.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið