Moggavefurinn segir í dag, að 35 þúsund manns hafi skrifað upp á áskorun Guðmundar Franklíns. Áskorun á forsetann um að hafna IceSave samningnum. Hið rétta er, að 15 þúsund nöfn voru á listanum. Þau hafa verið þar síðan um sumarið 2009. Þetta eru gömul nöfn og gömul áskorun. Guðmundur Franklín sjónhverfingamaður hefur bara tekið nöfnin frá fyrri árskorun og skipt um haus á henni. Svo að hún virðist snúast um nýjasta IceSave samninginn, en ekki samninginn frá í fyrra. Við erum orðið ýmsu vön af vinnubrögðum æstra sjónhverfingamanna. En fölsun Franklíns og Moggans slær öll fyrri met.