Fjárglæfrar alþingismanna, ráðherra, embættismanna, bankamanna og víkinga kosta almenning, börn okkar og barnabörn hundruð milljarða, sennilega langt yfir þúsund milljarða. Samt situr allt þetta pakk límt við stólana, þykist hafa umboð. Þetta er harðsvírað þjófagengi, sem þarf að reka burt. Mótmælin við alþingishúsið í dag eru fyrstu alvöru mótmælin. Vonandi harðna þau næstu daga. Vonandi hrekja þau glæpalýðinn frá völdum. Yfirstéttin í landinu hefur ekki bara farið yfir strikið. Hefur afskrifað siðferði, lýðræði, réttlæti, framið landráð. Friður verður hér, þegar pakkið flýr til Cayman-eyja.