Flykkjast ekki um Jóhönnu

Punktar

Sé ekki fyrir mér, að Evrópusinnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar fari í nýjan Evrópuflokk með Jóhönnu Sigurðardóttur og Samfylkingunni. Evrópumálin eru bara eitt atriði af mörgum, sem ráða atkvæði fólks. Miklu nær er, að Evrópusinnar reyni að berjast fyrir málstað sínum innan sinna gömlu flokka. Engar líkur eru á, að þjóðrembdri Framsókn verði þokað í málinu. Hins vegar fylgja margir atvinnulífsmenn í Sjálfstæðisflokknum auknu samstarfi við Evrópu og frjálsari viðskiptum milli ríkja. Evrópusinnaðir sjálfstæðismenn ættu að berjast innan flokks fyrir meirihluta um aðild að Evrópusambandinu.