Flugsveit þaggaði í fugli

Punktar

Við erum hér 60 kílómetra frá sjó á Kaldbak. Samt kom vargur hingað í fyrra og í sumar hefur hann komið tvisvar. Í gær kom heil flugsveit og fuglinn hljóðnaði í landinu. Í morgun var vargurinn aftur horfinn og fuglarnir byrjaðir aftur að syngja. Sjöunda sumarið á Kaldbak og fyrsta sumarið með líflegu fuglalífi. Landið hefur líka tekið við sér, mikill kvistur kominn, sem ekki var áður, einkum víðir. Flökkukindur eru færri en áður, ég hef bara séð eina kind tvílembda. Hún var á hraðferð, stökk yfir ristarhlið og anaði í áttina að Flúðum. Líklega að flýta sér í bjórinn á Útlaganum.