Flótti myndlistarmanna

Punktar

Myndlistarmenn hafa lengi verið á flótta yfir í leiklist. Gerningar leysa listaverk af hólmi. Höfundar gerninga reyna að trylla upp umræður til að auglýsa sig. Illt umtal er betra en ekkert umtal, hugsa þeir. Vinsælast er núna að ákalla tjáningarfrelsið, þegar hamlað er gegn öfgum þeirra. Okkur, sem daglega þjáumst af skorti á slíku frelsi, þykir lítið til þess ákalls koma. Við sætum hótunum um milljóna skaðabætur hjá dómstólum fyrir að segja satt. Myndlistarmenn vilja hins vegar maka skít á listaverk annarra og telja sig þar vera í skjóli tjáningarfrelsis. Þeir bulla og hafa enga samúð mína.