Samtök, sem þykjast á yfirborðinu stuðla að almannaheill, eru yfirleitt gegnsýrð af hagsmunaaðilum. Þannig stóðu staurblankir Lögmenn í Laugardal fyrir Hagsmunasamtökum heimilanna. Þau samtök voru að öðru leyti stofnuð af óráðsíumönnum, sem hrökkluðust úr bönkunum eftir hrun. Heimavarnarliðið var stofnað til að hjálpa löngu útrunnum verktaka, sem var kominn með allt á hælana fyrir hrun. Einstaklingar stofna félög með fallegum titli. Gísli Tryggvason er heppnastur, rekur eins manns stjórnmálaflokk undir titlinum Talsmaður neytenda. Við þurfum alltaf að skyggnast undir yfirborðið.