Fjúkið burt Geir og Ingibjörg. Ekki halda fleiri blaðamannafundi um ekkert eða um lygina. Þið eruð brennuvargar samfélagsins. Þið og ykkar lið hafið breytt alþjóðlegri kreppu í séríslenzkt hrun. Þið hafið gert þjóðina að hötuðum og fyrirlitnum aumingja. Þið gerðuð það með hroka ykkar. Þið vilduð ekki hlusta á neinn annan en ykkur sjálf. Ykkar tími er liðinn. Þið höfðuð tíma frá áramótum og fram í september, en notuðuð hann ekki. Þið voruð í prófi og fenguð núll komma núll. Þið hafið ekki heldur látið neinn fjúka og þurfið því að fjúka sjálf. Með Davíð auðvitað.