Mort Rosenblum segir fjögur atriði ógna tilveru mannkyns. Í fyrsta lagi stríðsárátta Bandaríkjanna. Í öðru lagi barátta þeirra gegn umhverfi sínu og vistkerfi jarðarinnar. Í þriðja lagi aukin eyðni og aðrir sjúkdómar í þriðja heiminum. Í fjórða lagi er það hnattvæðing ágirndarinnar. Hvert þessara atriða fyrir sig getur komið mannkyni á hliðina. Sameiginlega sýna þau okkur inn fyrir dyr helvítis nýja íhaldsins. Vatnsskorturinn einn mun koma af stað styrjöldum um aðgang að vatni. Bilið milli ríkra og fátækra getur ekki aukizt endalaust. Ætlum við að láta börn okkar erfa hryllinginn?
