Fjórflokkurinn var skárri

Punktar

Jón Gnarr gafst upp á borgarstjóranum. Hefur fengið mann til að sitja fyrir sig á leiðinlegum fundum. Getur þá lagt sig og lúrt milli ljósmyndatækifæra einu sinni á dag. Í bleikum fötum og með nýja húðflúrið. Staðgengillinn sér svo um að taka ákvarðanir á fundum á meðan. Þetta er gott kerfi fyrir alla. Dregur úr líkum á, að borgarstjórnin rugli út í loftið. Borgarbúar kusu Jón Gnarr til að vera borgartrúður. Þeir fengu það, sem þeir kusu. Jafnframt er hann að undirbúa bíómynd um feril sinn sem borgarstjóri. Hún verður vel sótt eins og annað, sem hann framleiðir af stönti. Fjórflokkurinn var þó skárri.