Fjórfalt gullæði Davíðs

Punktar

Árið 2003 var lækkuð bindiskylda banka í Seðlabankanum. Það setti 800 milljarða á lánamarkaðinn og olli gullæði. Árið 2004 hófst kapphlaup banka og Íbúðalánasjóðs um hærri íbúðalán, tvöfalt gullæði. Árin 2004-2008 komu Kárahnjúkar ofan á, þrefalt gullæði. Árið 2005 voru skattar lækkaðir til að auka enn veltuna, fjórfalt gullæði. Fjórfalda gullæðið hvolfdi þjóðarbúskap og olli okkur tjóni upp á þúsundir milljarða. Allt voru þetta afleiðingar af hagstefnu frjálshyggjunnar. Davíð innleiddi einkavæðingu og eftirlitsleysi. Ferlegast er, að sjálfur yfirbófi hrunsins predikar nýjar lausnir daglega.