Fjölmiðlar raska ekki ró

Punktar

Eins og venjulega var það erlendur fjölmiðill, sem birti fréttina um kröfur Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Vefsíða Financial Times er það, sem innlendir fjölmiðlar og ég vitna í. Af hverju geta íslenzkir fjölmiðlar sjaldan sagt okkur mikið af viti um hrunið? Það er búið að standa í þrjár vikur, án þess að fjölmiðlar hafi fyllt í götin. Ráðherrar komast upp með að þegja þunnu hljóði eða fara með brenglað mál. Dögum saman hafa fulltrúar sjóðsins verið hér án þess að neinn hafi sagt okkur frá kröfunum. Hafa fjölmiðlarnir ekki lengur nein sambönd? Af hverju svitna ég ekki lengur við lestur dagblaða?