Fjölmennir öfgahópar

Punktar

Evrópsk könnun sýnir aukinn styrk hægri öfgahópa, einkum meðal ungra karla. Þeir óttast innflutning fólks frá öðrum löndum, einkum múslima. Tengist ótta við innflutning glæpona frá Austur-Evrópu og kröfunni um úrsögn úr Schengen-samstarfinu. Tengist á allra síðustu mánuðum kröfunni um brottrekstur Suður-Evrópuríkja úr Evrópusambandinu og frá evrunni. Vilja þrengja múra Evrópu og þrengja múra eigin þjóðar. Ekki verður séð, að neitt verði við öfgana ráðið, að minnsta kosti ekki með hefðbundinni pólitík. Öfgahópar eru víða komnir skipulagðir og fjölmennir inn á þing, hafa áhrif á framvindu stjórnmálanna.