Fjögurhundruð fermetra talsmaður

Punktar

Marinó G. Njálsson er hluti gamla Íslands, sem ég þekki of vel af langri reynslu í fjölmiðlum. Slíkir plöguðu mig í starfi áratugum saman. Telur fjármál talsmanns hagsmunasamtaka vera sitt einkamál. Telur skyldleika við starfsmann ritstjórnar geta hindrað birtingu fréttar um sig. Telur hótanir um málsókn geta hindrað skrif fleiri fjölmiðla um sig. Marinó býr í tæplega 400 fermetra húsi. Hann á fátt sameiginlegt með unga fólkinu, sem berst í bökkum eftir íbúðakaup síðustu árin fyrir hrun. En hagsmunasamtök hans hafa hampað aðferðum, sem nýtast þeim, sem skulda háar fjárhæðir í stórum húsum.