Fjarstýrður Árni Páll

Punktar

Margrét Tryggvadóttir kom upp um efnahagsráðuneyti Árna Páls Árnasonar. Það er deild í Samtökum fjármálafyrirtækja. Fulltrúi ráðuneytisins kom á fund viðskiptanefndar Alþingis. Las þar upp úr plaggi ráðuneytisins, en vildi ekki afhenda það. Fyrir harðfylgi Margrétar kom í ljós, að plaggið var frá Samtökum fjármálafyrirtækja. Árni Páll hefur lengi komið mér undarlega fyrir sjónir. Ráðgjafar hans og vinir eru gamlir bófar úr bönkunum. Hann hugsar eins og þeir og talar stjarfur út í loftið, eins og fjarstýrður sé. Ferlegt er, að bankaráðherrann sé hluti af hruninu og hugsi eins og hrunverjarnir.