Fjallmenn voru í morgun í kaffi á Kaldbak. Þaðan er að venju riðið á fjall. 34 menn, hver með þrjá til reiðar, eru í viku leitum í Hrunamannahreppi. Þær ná milli Hvítár og Stóru-Laxár upp að Hofsjökli. Rúmlega 200 manndagar! Samt hafa aðeins tíu jarðir og jarðarpartar fjallskyldu. Aðrir hafa fé í heimahögum. Leggst því þungt á suma sauðfjárbændur. Sá umsvifamesti þarf að leggja til tíu menn. Fyrir ekki margt löngu voru 15 þúsund fjár á fjalli, núna þrjú þúsund. Hvenær hættir þetta að borga sig, spurði ég. Þurfið þið ekki að selja aðgang upp í kostnað? Alls ekki, sagði Stefán í Hrepphólum.
