Finndu Finn í ungmennafélagi

Punktar

Ungmennafélag Íslands er framsóknarlegt. Hefur elzt eins og Framsókn. Er orðið vettvangur fjárglæfra gamalla manna. Eins og Framsókn. Það svindlaði sér út lóð á Tryggvagötu 13 til að reisa þar menningar- og þjónustumiðstöð fyrir ungt fólk. En hefur í staðinn teiknað þar Edduhótel. Framkvæmdastjóri Ungmennafélags Íslands, Sæmundur Runólfsson, og Finnur Ingólfsson, eigandi í Edduhótelum, eru bræðrasynir. “Finndu Finn” segir lögmálið um, hvernig rannsóknarblaðamenn á Íslandi eigi að finna spillingu. Næsta skref í málinu verður vonandi, að Reykjavíkurborg afturkalli lóðarveitingu til dólganna.