Fjölmiðlar fyllast af viðtölum við grátandi fjármálaséní. Það er annað stig í vörnum þeirra. Fyrsta stigið var að kenna öðrum um, banka eða bróður. Annað stigið er að segjast þurfa áfallahjálp. Finndu-Finn toppaði það í viðtali í dag. Segir, að fólk tali um sig annað hvort sem aumingja, ef hann tapi, eða sem þjóf, ef hann græði. Ég hef ekki heyrt neinn segja þetta. Hins vegar hafa margir sagt mér, að Finndu-Finn sé hvort tveggja, aumingi og þjófur. Auðvitað er löngu tímabært, að fjölmiðlar leiðrétti þann útbreidda misskilning. Grátandi Finndu-Finn má ekki gjalda fyrir, að vera Framsókn!