Flestum, sem ég þekki, þykir einkennilegt, að oddamenn ríkisstjórnarinnar ræði öryggisráðið, þegar landið brennur. Þeim finnst líka skrítið, að þeir vilji ekki kalla krísufund með Seðlabankanum réttu nafni. Halda þau Geir og Ingibjörg, að fólk vilji stinga haus í sand, þeim til samlætis? Við erum að sigla inn í meiriháttar kreppu, sem hagkerfi Vesturlanda ræður ekki við. Þessi kreppa skellur harðar á okkur en öðrum vegna frjálshyggju bankamála. Kjósendur vilja, að landsfeður taki frumkvæði. Segi, hverjum skuli bjarga, bankastjórum eða unga fólkinu. Þau hætti fínimannsleik í öryggisráðinu.
