Vestfirðingar standa öðrum Íslendingum mörgum skrefum framar í undirbúningi framboða fyrir næstu alþingiskosningar. Og þar á ofan virðast þeir ætla að gera sínar kosningar meira spennandi en kosningar í flestum öðrum landshlutum.
Á Vestfjörðum hafa þegar verið valdir allir frambjóðendur, sem hugsanlega geta komizt á þing. Aðeins einn flokkur hefur enn ekki formlega ákveðið, hverja hann býður fram í efsta sæti. Það eru Samtök frjálslyndra og vinstri manna. Þau eiga ekki heldur nokkra minnstu von í þessu kjördæmi, úr því að einkum Karvel Pálmason og einnig Jón Baldvin Hannibalsson eru á öðrum framboðslistum.
Prófkjör og skoðanakannanir hafa ekki megnað að breyta framboðum á Vestfjörðum frá síðustu kosningum. Hjá framsóknarmönnum stóðst Gunnlaugur Finnsson í Hvilft tilraun Ólafs Þórðarsonar skólastjóra til að komast í annað sætið. Og Sighvatur Björgvinsson hélt fyrsta sæti alþýðuflokksmanna fyrir Jóni Baldvin Hannibalssyni. Bæði Gunnlaugi og Sighvati tókst þetta með miklum yfirburðum.
Eini munurinn á væntanlegum kosningum og hinum síðustu er sá, að Karvel Pálmason verður nú í óháðu framboði án atbeina Samtakanna og í raun og veru í beinni samkeppni við þau. Staða hans er sennilega erfiðust hinna vestfirzku þingmanna, sem nú stefna að endurkjöri.
Fróðir menn telja, að Framsóknarflokkurinn muni tapa nokkru fylgi á Vestfjörðum í næstu kosningum eins og raunar víðar á landinu. Slíkt fylgistap getur hæglega teflt þingsæti Gunnlaugs bónda í Hvilft í nokkra tvísýnu.
Síðast fór Gunnlaugur inn á 716 atkvæðum og Karvel á 711 atkvæðum. Keppinautar þeirra um þingsæti eru uppbótarmenn hinna flokkanna þriggja. Síðast fékk Sigurlaug Bjarnadóttir, þriðji frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, 600 atkvæði. Þá fékk Kjartan Ólafsson hjá Alþýðubandalaginu 578 atkvæði og Sighvatur Björgvinsson hjá Alþýðuflokknum 495 atkvæði.
Þau Gunnlaugur, Karvel, Sigurlaug, Kjartan og Sighvatur berjast um tvö laus kjördæmisþingsæti. Aðeins þrír frambjóðendur eru í öruggum sætum, þeir Matthías Bjarnason og Þorvaldur Garðar Kristjánsson hjá Sjálfstæðisflokknum og Steingrímur Hermannsson hjá Framsókn.
Hér að framan hefur því verið haldið fram, að staða Gunnlaugs og Karvels sé verri en síðast. Við það bætist svo, að staða hinna þriggja keppinautanna hefur batnað, einkum staða Sighvats og Kjartans.
Sighvatur hefur nú fengið Jón Baldvin með sér í annað sætið og þar með eitthvað af svokölluðu Hannibalsfylgi úr Samtökunum. Þar á ofan var mjög góð þátttaka í prófkjöri Alþýðuflokksins í kjördæminu.
Kjartan náði mjög góðum árangri fyrir Alþýðubandalagið í síðustu kosningum. Hann hefur síðan treyst stöðu sína innan flokksins, auk þess sem flokkurinn virðist hafa sótt á í kjördæminu.
Að öllu þessu samanlögðu er rétt að búast við spennandi talningu á Vestfjörðum í næstu þingkosningum.
Jónas Kristjánsson
Dagblaðið