Einn maður á landinu er hrokafyllri og dónalegri í garð hælisleitenda en Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum. Það er fulltrúi hans, Eyjólfur Kristjánsson. Báðir ganga þeir langt í órökstuddum dylgjum og órökstuddu slúðri um hælisleitendur. En Eyjólfur vill þar á ofan koma þeim fyrir í fangabúðum. Hann hefur “viðrað þessar áhyggjur okkar við yfirvöld.” Jóhann er frægastur fyrir að líkja ofsóknum sínum sem eins konar “shit happens”. Eyjólfur berst fyrir auknum fasisma í baráttu lögregluríkisins gegn minni máttar. Þeir fá frítt í sund, segir hann stórhneykslaður.
