Falsað myndband

Punktar

Bandaríkjastjórn hefur gefið út falsað myndband af meintu áreiti íranskra hraðbáta við bandarísk herskip. Það minnir á fölsuðu myndirnar, sem Colin Powell utanríkisráðherra sýndi í öryggisráðinu. Þá voru Bandaríkin að ljúga atómvopnum upp á Írak. George W. Bush forseti þurfti að komast í stríð til að vinna forsetakosningar. Nú vill hann aftur komast í stríð og í þetta sinn gegn Íran. Stjórn hans hefur logið atómvopnum upp á Íran. Þótt allar leyniþjónustur hans hafi birt skýrslu um hið gagnstæða. Ástæða er til að óttast, að Bush sé á atkvæðaveiðum að þreifa sig fram til nýs stríðs.