Falsað merki skráargats

Punktar

Án þess að hafa til þess heimild er Mjólkursamsalan farin að stimpla vörur frá sér með norrænu merki skráargatsins. Það á að einkenna mat, sem er betri og hollari en almennt gerist í þeim vöruflokki. Enginn aðili hefur staðfest, að svo sé. Dregizt hefur að koma upp slíku eftirliti hér, meðal annars vegna innlendra framleiðenda, sem vilja útvatna reglurnar. Því er stimpill á fæðu Mjólkursamsölunnar falsaður. Felur í sér eindreginn brotavilja fyrirtækis, sem reynir að rugla neytendur í ríminu. Í samræmi við almenna fyrirlitningu innlendra framleiðenda á neytendum, sem ítrekað hefur komið fram nýverið.