Sem betur fer sýna kannanir aukinn meirihluta þeirra, sem segja Já. Þeir eru að verða tvöfalt fleiri en Nei-menn. Aukningin er öll í Flokknum. Þar sækir Bjarni á, en Davíð hrunvaldur fer halloka. Ég hef áður sagt, að IceSave muni vinnast innan Flokksins. Samt er ótímabært að fagna. Margir eiga eftir að gera upp hug sinn. Í rauninni hefur Já bara 27% fylgi og Nei bara 15% fylgi. Enn er því langt í land. Að auki eru fylgismenn rólegri í tíðinni og latari, líklegri til að sitja heima. 15% þjóðarinnar eru hins vegar froðufellandi af ábyrgðarleysi og siðleysi. Þeir munu sko ekki láta sig vanta á kjörstað.