Eyjan stóð sig bezt

Punktar

Karl Th. Birgisson ritstjóri hefur sóma af að hafa birt númer og byggðarlag bílsins. Í frétt Eyjunnar vantaði bara nafn mannsins, sem drap sambýliskonu sína. Auðvitað byrja menn strax að kenna sögumanni um ótíðindin. Fremstir fara þar klerkar, sem hafa atvinnu af hræsni og yfirdrepskap. Hér á landi hefur áratugum saman ríkt þögul feimnistefna. Ótal atriði eru talin vera tabú, sem ekki megi tala um. Margir eiga bágt með að skilja, að þöggun og leyndó, meðvirkni og bannhelgi eru til ills. Ef fjölmiðlar hefðu sagt frá hlutum eins og þeir voru, hefðum við kannski sloppið við hrunið mikla.