Spákaupmenn geta haft innkomu í einni mynt og útgjöld í annarri. Það getur venjulegt launafólk ekki. Ef kaup þess er í krónum, getur það ekki haft útjöld í evrum. Þess vegna þýðir ekki að taka evrulán fyrir bíl eða húsi. Skuldirnar verða fljótlega hærri en söluverð eignanna. Þrátt fyrir þessi augljósu sannindi leyfðu bankarnir sér að tæla fólk í gjaldeyrislán. Ég benti þá á, að það væri svívirðilegt. Allir létu það sem vind um eyru þjóta. Og enn talar enginn um, að stinga beri stjórnendum evrulána í fangelsi. Ráðgjöf þeirra var glæpsamleg mótsögn við heilbrigða skynsemi.
