Evrópskt lýðræði í Hafnarfirði

Punktar

Hafnarfjörður tekur upp reglur Evrópusambandsins um kosningar. Þær felast í, að kosið er aftur og aftur, unz rétt niðurstaða fæst. Ef Írar vilja ekki fallast á stjórnarskrá sambandsins, eru þeir látnir kjósa aftur. Og aftur, þangað til þeir örmagnast og kjósa rétt. Sama er með álverskosningarnar í Hafnarfirði. Ef bæjarbúar hafna stækkun álversins í Straumsvík, eru þeir bara látnir kjósa aftur. Unz þeir kjósa rétt. Ekki eru einu sinni látin líða fjögur ár milli kosninga eins og í byggðakosningum. Heldur bara hvenær sem mat Lúðvíks er, að hugarfar kjósenda sé skárra. Þessu stýrir Samfylkingin.