Evrópa lærir og styrkist

Punktar

Evrópa er alltaf að læra. Núna er hún að læra, að ríki geta ekki leyft sér að vera í taprekstri. Rekstur ríkisins þarf að vera sjálfbær. Tekjur þurfa að standa undir gjöldum. Ríki geta ekki safnað skuldum til að kaupa atkvæði almennings. Við sjáum þetta bezt í spilltu Grikklandi. Evrópa lærir þessa lexíu á undan Bandaríkjunum, sem eru í miklum taprekstri. Það er kosturinn við kreppuna, að menn læra af henni. Enda sjáum við þess engin merki, að evran sé að gefa eftir. Hún heldur verðgildi sínu, þrátt fyrir allar vondu fréttirnar frá Miðjarðarhafsríkjunum. Evrópa lærir og styrkist í kreppunni.