Evrópa hefur ekki steinhjarta

Punktar

Björn Bjarnason innflytjendaráðherra fór með rangt mál við blaðamenn í gær. Sagði Evrópusambandið hafa samþykkt tillögu Frakklandsforseta um strangari meðferð innflytjenda. Sambandið felldi raunar allar tillögur Sarkozy um þetta. Í staðinn samþykkti sambandið í Cannes allt aðrar og vægari reglur. Þær fela í sér einföldun verka, svo að ákvarðanir taki styttri tíma. Áfram verður ríkjum heimilt að veita landvist af mannúðarástæðum. “Við erum ekki að breyta Evrópu í virki”, sagði Schäuble, innanríkisráðherra Þýzkalands. Björn fer oft rangt með staðreyndir, segir gjarnan það sem honum hentar.