Hugtökin siðgæði og heiðarleiki eru ofarlega í niðurstöðum þjóðfundar. Ég veit ekki enn, hvaða málsgreinar eru kringum þessi víðtæku og óneitanlega loðnu orð. Vonandi koma þær í ljós. Þá getur stjórnlagaþing betur áttað sig á, hvað þjóðfundurinn meinar. Þinginu mun reynast flókið en ekki ógerlegt að vinna úr því. Ljóst er, að allir geirar ríkisins þjást af skorti á siðgæði og heiðarleika. Til dæmis er dómskerfið siðfrítt, miðar bara við lagatækni. Við þurfum að kenna siðgæði og heiðarleika. Og nýja stjórnarskráin þarf að þröngva þessari hugsun upp á dómara og þingmenn, ráðherra og embættismenn.