Enn einn ósigur réttarfarsins

Punktar

Dómurinn í héraðsdómi yfir níumenningunum er hvorki fugl né fiskur. Flestir voru sýknaðir, tveir hlutu lága sekt og tveir fengu skilorð. Þeir verða ekki settir inn. Miðað við málsefni er þetta rugl. Væri skiljanlegra, ef fólkið hefði verið kært fyrir aðsúg. Hins vegar var kært fyrir árás á Alþingi, eins konar landráð. Á þeirri forsendu hefði verið rétt að sýkna alla. En dómarinn rýndi í fleira en lögin. Hann kvað upp meintan diplómatískan úrskurð, sem engum líkar samt. Ekki er hægt að kalla dóminn réttarfarslegt hneyksli, en hann er samt úti á túni að hafa alla góða. Enn einn ósigur réttarfarsins.